
Eignaskiptayfirlýsingar.is
Eignaskiptayfirlýsing.is, sérhæfir sig í gerð
eignaskiptayfirlýsinga fyrir ný og eldri fjöleignahús. (Oft er talað um eignaskiptayfirlýsingar
sem eignaskiptasamninga eða skiptasamninga).
Liggi ekki fyrir þinglýstur, fullnægjandi
og glöggur eignaskiptasamningur, er eigendum húss sem innheldur fleiri
en eina
eign skylt að láta gera eignaskiptayfirlýsingu, samkvæmt lögum um
fjöleignarhús,
Á þessum vef finnur þú upplýsingar um skráningartöflur, eignaskiptayfirlýsingar, breytingateikningar og okkar þjónustu.
Ávinningur af nýrri eignaskiptayfirlýsingu
Ávinningur af nýrri eignaskiptayfirlýsingu getur verið mikill. Frá 1. janúar 2001 hefur þinglýsing eignayfirfærslu fyrir eignarhluta í fjöleignarhúsi (það er kaup eða sala einstakra eigna í húsinu) verið bundin því skilyrði að þinglýst eignaskiptayfirlýsing liggi fyrir.Það er mikilvægt fyrir eigendur að til sé skýr og rétt eignaskiptayfirlýsing fyrir hvert fjöleignarhús. Eignaskiptayfirlýsing staðfestir meðal annars hversu stór eignin er, hvaða hlut hún ber í sameiginlegum kostnaði, hvaða réttindi og kvaðir kunna að hvíla á lóðinni, á húsinu eða einstökum eignum innan þess.
Skráningartafla
Samkvæmt núgildandi lögum er skylt að skila skráningartöflu með öllum byggingarnefndarteikningum sem lagðar eru fyrir byggingarfulltrúa. Skráningartaflan skilgreinir húsið og lóðina og tekur fram hvaða rými tilheyra hvaða eign. Það er algengt að ekki hafi verið gerð skráningartafla fyrir eldri hús. Skráningartöflu verður að gera þar sem eignaskiptayfirlýsingin byggir alltaf á henni. Ef skráningartöflu vantar sér Eignaskiptayfirlýsing.is, um að gera hana fyrir viðkomandi eign um leið og eignaskiptayfirlýsinguna.Nægilegt er að einn aðili í fjöleignarhúsi krefjist nýrrar eignaskiptayfirlýsingar
- Eigandi, sem telur þá eignaskiptayfirlýsingu sem nú er í gildi fyrir húsið ranga, getur krafist þess að ný eignaskiptayfirlýsing verði gerð í samræmi við fyrirmæli fjöleignarhúsalaga og reglugerð um- eignaskiptayfirlýsingar.
- Sama gildir þegar ekki er til skiptasamningur eða eignaskiptayfirlýsing fyrir húseignina.
- Er kostnaður þinn af sameign og utanhúss viðgerðum rétt
reiknaður?
Smelltu HÉR til að skoða svör við ýmsum spurningum er varða eignaskipti í fjöleignahúsum. - Hafðu samband í síma 588-7744 eða smelltu HÉR til að fá frekari upplýsingar.
